Það þarf ekki alltaf að flækja hlutina, enda börnin búin að margsanna að einu sinni verðlausir hlutir geta orðið að dýrlegu leikefni. Öldubörnin stukku heim til Hörpu og sóttu stóra kassa. Það varð að dásemdarvinnu og leik. Litlir kassar á lækjarbakka voru fínir en stórir eru ekki síðri.
Lilja Steinunn Jónsdóttir, björgunarsveitarkona, og Rökkvi, björgunarhundurinn hennar, komu í heimsókn í morgun. Lilja kynnti fyrir Öldubörnunum, og þeim Bárubörnum sem höfðu áhuga, eldgosið og þær hættur sem því fylgir. Hún sagði einnig frá þjálfun björgunarhunda og fengu börnin að sjá skemmtilegar og áhugaverðar myndir og myndbönd af snjóæfingum hunda og frá eldgosinu.
Við upprifjun kom í ljós að eftirfarandi stóð upp úr eftir heimsóknina. (Haft orðrétt eftir börnunum):
Öldudeildin hefur lagt gangstétt undir fót liðna daga og verið víðförul. Eitt það skemmtilegasta sem börnin gera í slíkum ferðum er að koma við á leikvöllum. Þar er hægt að gera ýmislegt annað en heima í Ægisborgargarðinum, en stundum það sama.
Í inniverunni heima í Ægisborg bjuggu tveir piltar til risaeðlutafl og hönnuðu eigin risaeðlugang. Það er því ekki nóg að kunna mannganginn, heldur einnig risaeðluganginn. Ef smellt er á myndina birtist hún stærri.