Þróunarsamstarf Grandaskóla, Grandaborgar, Gullborgar og Ægisborgar 2015-2017, bar yfirskriftina Læsi í leiðinni. Hugmyndin að baki verkefninu var að brúa betur bilið milli leikskólanna og Grandaskóla með því að nota læsistengda vinnu sem leiðarhnoða. Unnið var að því að gera grunnskólaupphaf að eðlilegri framvindu í líf barnsins með því að hittast reglulega og vinna að sameiginlegum verkefnum. Afraksturinn mátti m.a. sjá á Barnamenningarhátíð, en umfram allt snérist verkefnið þó um hina dags daglegu vinnu og heimsóknir milli skólanna. Nánar má lesa um starfið í lokaskýrslu verkefnsins sem má finna hér:
Veturinn 2013 til 2014 hófst vinna við þróunarverkefni sem snýst um að rannsaka lífsgildi í leikskólastarfi. Í samstarfi RANNUNG, Ægisborgar og Brákarborgar voru tekin fyrir ákveðin gildi í leikskólastarfi hvors leikskóla um sig og þau rýnd. Aðferðin var starfendarannsókn, hvar kennarar miðuðu að því að rýna kennsluhætti sína, læra af og bæta.
Markmið rannsóknarinnar var að auka skilning á þætti leikskólans í menntun barna og hvernig þeir þróa og miðla ákveðnum lífsgildum. Leitað var svara við eftirfarandi rannsóknarspurningum: